Af hverju netföng eru orðin ein mikilvægasta eign fyrirtækja?
Markaðssetning hefur aldrei verið jafn hröð og ófyrirsjáanleg og hún er í dag. Gervigreind er farin að hafa áhrif á hvernig fólk finnur vörur, hvernig efni er birt og hvaðan fyrirtæki fá athygli. Samhliða þessu taka hefðbundnar rásir sem við þekkjum öll, eins og leitarvélar og samfélagsmiðlar, stöðugum breytingum, auk þess sem sífellt er verið að þrengja að aðgerðum samhliða GDPR (almenn persónuverndarreglugerð).